Cube Stereo Hybrid ONE77 HPC Race 800
Stereo Hybrid ONE77 HPC stellið er hannað fyrir krefjandi fjallahjólaleiðir, með 170 mm fjöðrun bæði að framan og aftan og svokallaðri „mullet“ uppsetningu – 29" framhjól og 27,5" afturhjól.
Eins og oft hjá CUBE er mikið lagt upp úr smáatriðunum. Kaplarnir eru leiddir inn í stellið fyrir hreint og snyrtilegt útlit og stillanlegar stýrislegur gera þér kleift að breyta stýrishorninu og laga aksturseiginleikana að þínum óskum. 800 Wh Bosch PowerTube rafhlaðan er felld inn í neðra stellrörið sem er úr koltrefjum - rétt fyrir ofan Bosch CX mótorinn.
Afturgaffallinn er úr áli með UDH skiptifestingu sem er sterkbyggð og auðvelt skipta um. Direct Mount keðjustýring hjálpar jafnframt til við að halda keðjunni á sínum stað þegar farið er yfir gróft og krefjandi undirlag.
Stereo Hybrid ONE77 HPC Race er fyrir þá sem vilja öflugt rafmagnsfjallahjól fyrir erfiðar og tæknilegar leiðir. Carbon stell, Bosch CX mótor, 170 mm fjöðrun og 29"/27,5" mullet uppsetning skila hjóli sem er sérstaklega vel heppnað fyrir brattar brekkur, gróft undirlag og hraðan akstur niður fjallaleiðir.
Við eigum þetta hjól í small.
